Krakkakirkja á laugardag og messa á sunnudag

Það er viðburðarík helgi framundan. ☀️🍂

Á laugardaginn, 28. september hefst Krakkakirkjan eftir sumarfrí kl. 11 í Jónshúsi. Það verður bangsadagur og boðið verður upp á bangsablessun fyrir þau sem vilja. 🧸💦

Á sunnudaginn, 29.september kl. 13 verður næsta messa í Esajas Kirke. Við hlökkum til að sjá sem flesta í notalegri stund. Séra Sigfús Kristjánsson og Kjartan Jósefsson Ognibene organisti leiða stundina og Kvennakórinn Eyja leiðir sönginn undir stjórn Jónasar Ásgeir Ásgeirssonar. Njótum þess að syngja saman, biðja og hlusta á hugleiðingu. 🙏🎶

Kirkjukaffi í Jónshúsi eftir stundina á 50DKK ☕🍰

Verið öll hjartanlega velkomin! 💖