Fermingarfræðsla í íslenska söfnuðinum felst í fermingarferðalögum, fræðslustundum í Jónshúsi og þátttöku í helgihaldi. Á hverjum vetri fer fermingarhópurinn héðan tvisvar í ferðalag til Ah Stiftsgard í Svíþjóð. Það er fallegur staður rétt utan við Gautaborg. Þar hittum við íslensk fermingarbörn frá Svíþjóð og Noregi. Ferðirnar eru að hausti og vori. Nokkrum sinnum yfir veturinn hittumst við svo í Jónshúsi í fræðslu, oftast í tengslum við Guðsþjónustur safnaðarins. Fermingarmessan verður laugardaginn 18.maí kl. 11 2024. Það er einnig algengt að fermingarbörn séu í fræðslu hér þó svo að fermingin fari fram á Íslandi.